Tilkynningar

Lögfræðingur með þekkingu á EES og alþjóðamálum

29.8.2023

Skrifstofa Alþingis leitar að öflugum lögfræðingi með sérþekkingu á Evrópurétti til starfa í alþjóðadeild þingsins. Um er að ræða fjölbreytt, spennandi og krefjandi starf í lifandi starfsumhverfi og því fylgir umtalsverð funda- og ráðstefnusókn erlendis. Í starfinu felst sérfræðivinna fyrir utanríkismálanefnd, m.a. við þinglega meðferð EES-mála, lögfræðilega ráðgjöf og faglega yfirferð mála sem koma til meðferðar hjá nefndinni. Þá er fagleg ráðgjöf á sviði EES-mála til annarra fastanefnda þingsins og vinna í EES-teymi með lögfræðingum nefndadeildar hluti starfsins.

Þá er einnig um að ræða verkefni fyrir þingmannanefnd EFTA, þingmannanefnd EES og sameiginlega þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins, m.a. við faglega aðstoð og ráðgjöf, undirbúning fyrir þátttöku í alþjóðlegum fundum erlendis og skipulagningu alþjóðlegra þingmannafunda sem haldnir eru á Íslandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Lögfræðileg ráðgjöf og fagleg aðstoð við utanríkismálanefnd, einkum á sviði EES-mála
  • Lögfræðileg ráðgjöf til annarra fastanefnda þingsins á sviði EES-mála
  • Yfirferð lagafrumvarpa og annarra þingmála, gerð nefndarálita og breytingartillagna
  • Skipulagning og umsjón með starfi nefnda, m.a. samskipti við stjórnvöld og aðila utan þings
  • Fagleg ráðgjöf á sviði alþjóðamála
  • Upplýsinga- og greiningarvinna
  • Skipulag alþjóðlegra funda og ráðstefna hérlendis
  • Skipulag þátttöku í fundum og ráðstefnum erlendis

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði
  • Mjög góð þekking á Evrópurétti og alþjóðamálum
  • Reynsla úr opinberri stjórnsýslu eða af sambærilegu starfi
  • Starfsreynsla á sviði alþjóðlegs samstarfs er kostur
  • Reynsla af skipulagningu funda og ráðstefna er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
  • Framúrskarandi færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem forseti Alþingis og Félag starfsmanna Alþingis hafa gert.

Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið í gegnum ráðningakerfið Orra. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið auk staðfestingar á prófgráðum og upplýsingum um meðmælendur. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun liggur fyrir.

Tekið er mið af jafnréttisáætlun skrifstofu Alþingis við ráðningar, starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um. Skrifstofa Alþingis hefur hlotið jafnlaunavottun og starfar í samræmi við betri vinnutíma. Gildin okkar eru fagmennska, virðing og framsækni.

Nánari upplýsingar um starfsemi Alþingis og skrifstofu þingsins er að finna á vef Alþingis.

Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 12.09.2023.

Nánari upplýsingar veitir

Stígur Stefánsson, deildarstjóri – stigur@althingi.is – 563-0500

Sækja um starf